Marý Ólafsdóttir vöruhönnuður útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2007 og starfar í dag í Svíþjóð. Innblástur fær hún helst úr umhverfi sínu og hversdagslífi, fyrir henni er mikilvægt að hanna vöru sem skipti fólk máli, hvort sem varan er nytsöm, falleg eða komi skilaboðum á framfæri.