Fallegur vegglímmiði frá fyrirtækinu VEGG sem sérhæfir sig í hönnun vegglímmiða. Límmiðinn er úr sterkri fjölliðafilmu og hefur því ekki tilhneigingu til að flagna af. Honum er pakkað í fallegar og handhægar umbúðir og er því tilvalinn til gjafa.
Norðurljósin hafa ávallt heillað mannkynið. Þessi skæru ljós himinsins myndast af straumi hlaðinna agna sem koma frá sólinni og inn í andrúmsloft jarðar. Þau mála næturhimininn með einstökum, næstum ójarðneskum litbrigðum. Litur þeirra er oftast ljósgrænn en stundum má sjá örlítinn bleikan tón í þeim. Norðurljósin geta einnig verið fjólublá eða hvít og í mikilli hæð geta þau jafnvel orðið rauð. Bestu skilyrðin til að sjá þessi dýrðlegu ljós eru á dimmum, köldum og heiðskírum kvöldum fjarri ljósum borganna.
Nánari texti fylgir vöru