AKKERI og Scarab – skartgripalínur ætlaðar konum og körlum eftir Orra Finn
Akkerið er alþjóðlegt tákn sjómennskunar. Akkerið er verkfæri þeirra sem stunda sjó og minnisvarði um þá sem hafa tileinkað líf sitt hafinu. Skartgripalínan AKKERI vísar einnig í siglinguna sjálfa, ferðalagið og ævintýraþrána. Sjóleiðis getur þú kannað ókunn svæði og fengið útrás fyrir ævintýraþrá þína en án akkeris mun þig reka, akkerið er landfestin og gerir þér því kleift að stýra ferðalagi þínu í réttar áttir og festa land þar sem þér líður best.
Orri Finn er hönnunarteymi Orra Finnbogasonar og Helgu Gvuðrúnar Friðriksdóttur en þau leiddu hesta sína saman í byrjun árs 2012.