María Rut Dýrfjörð er grafískur hönnuður sem hannar undir merkinu Maria Creative Studio.
Hulduheimur er munsturlína sem samanstendur af sex munstrum í tveimur litapalettum. Munstrin eru öll innblásin af byggingum Guðjóns Samúelssonar en markmiðið var að fanga form þeirra og yfirbragð.