Munstrið Stuðlar er hluti af vörulínunni Hulduheimur. Munstrin í línunni eru öll unnin út frá byggingum Guðjóns Samúelssonar en markmiðið var að hanna munstur sem endurspegla form þeirra og kallast á við arkitektúrinn. Munstrið Stuðlar er unnið útfrá turnum Akureyrarkirkju og endurspeglar form þeirra.
Munstrið er stafrænt prentað á þykka skáofina bómull. Púðinn er með rennilás að neðan þannig að auðveldlega má fjarlægja fyllinguna og þvo verið. Mælt er með því að þvo hann á handþvotta- prógrammi/ullarpróframmi.